Hvað máttu keyra með B-réttindi
(almenn ökuréttindi)?
Almenn ökuréttindi gefa rétt til að aka fólks- eða sendibifreið sem er:
- ekki þyngri en 3.500 kg
- með sæti fyrir mest 8 farþega auk ökumanns
- með tengdan eftirvagn eða tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd
- með tengdan eftivagn sem er meiri en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, en þá má leyfð heildarþyngd beggja ökutækja ekki vera meiri en 3.500 kg samtals
Ennfremur máttu aka:
- léttu bifhjóli (skellinöðru)
- bifhjóli á þremur eða fleiri hjólum
- torfærutæki t.d. vélsleða
- dráttarvél
- vinnuvél í umferð, en þó ekki vinna á hana nema þú hafir vinnuvélaréttindi
Sá sem er yngri en 21 árs má þó ekki stjórna bifhjóli á þremur hjólum sem er aflmeira en 15 kW.